endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að ég nefndi ekki 1 kr. inn og 7 kr. til baka, og 1 kr. inn og 9 kr. til baka, er sú að að sumu leyti deili ég nefnilega sýn með hv. þingmanni. Ef það selst heitur réttur á veitingastað í Reykjavík þá eru það margar greinar hér á svæðinu sem telja sig eiga hlutdeild í því. Það er mjög flókið reikningsdæmi og við höfum forðast að nota það. En við getum auðvitað fyrst og fremst ekkert gert annað en að halda okkur við þær skýrslur sem hafa verið gerðar og hafa sýnt fram á mælanlegan ávinning af kerfinu, nákvæmlega hversu mikill hann er. Við sjáum þó alla vega hreinlega hver bein áhrif eru og það eru þessi óbeinu og afleiddu áhrif sem má deila meira um. Hér hafa verið að koma inn verkefni sem hafa skilað mjög miklu í veltu í samfélaginu. Ef spurningin er: Hefði verið betra að gera eitthvað annað? Já, það má vera og það er stærri spurning. En þetta hefur svo sannarlega verið að skila ávinningi.