157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:34]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, hér á Íslandi er nám á fleiri en einu stigi skólakerfisins. Við erum með nám á fjórða hæfnissviði framhaldsskóla sem ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi verið að vísa til og svo erum við með nám í Listaháskóla Íslands á háskólastigi. Það skiptir gríðarlega miklu máli að hlúð sé að þessu og að það sé hugsað um þetta. Það skiptir ekki síður miklu máli að nám sem stundað er á fjórða hæfnissviði í framhaldsskóla geti leitt til gráðu í háskóla, þannig að í staðinn fyrir að vera að reisa endalaus síki á milli skólakerfa á Íslandi, eins og hefur verið gert í allt of miklum mæli, þá reynum við frekar að byggja brýr þannig að lærdómur sem skilar sér á einu skólastigi eða í einni grein, námskeiði eða annað geti leitt til einhvers í framtíðinni. Þannig að já, ég held að við þurfum að styðja betur við nám í þessum greinum. Svo má ekki gleyma því, eins og ég nefndi í ræðu minni, að myndlistarmenn, tónlistarmenn og fleiri sem stunda háskólanám í listum vinna gjarnan innan kvikmyndanna.