endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og tek undir. Það er gríðarlega fjölbreyttur hópur sem kemur að þessum verkefnum og þessi kvikmyndaverkefni eru ótrúlega mikilvæg. Mig langar til að hvetja ráðherrann til dáða á þessu menntasviði og hugsa um það á fjölbreyttari vegu en að allir þurfi að ljúka háskólagráðu. Það eru svo mörg ólík form til að styrkja þennan geira í gegnum fjölbreyttar námsleiðir.
Mig langar til að nýta seinna andsvar til að spyrja um Íslandsstofu og hvernig ríkisstjórnin ætlar að beita Íslandsstofu eða öðrum leiðum til að tryggja að við séum að auka fjölda verkefna og fá sem bestu verkefnin hingað til lands sem skila hvað mestu í ríkissjóð. Er einhver sérstök strategía eða áætlun og töluleg markmið sem ríkisstjórnin hefur sett sér í þeim efnum?