157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

263. mál
[17:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði nú bara að hafa hér nokkur orð um mikilvægi þessarar atvinnugreinar, sem við höfum verið með markvissan stuðning við núna í rúman aldarfjórðung og hvaða miklu áhrif hún hefur haft á íslenskt samfélag. Augljóst er að við síðustu breytingar, þegar við fórum fyrir nokkrum árum í þennan 35% stuðning og gátum líka tekið á móti stærri verkefnum, þá varð það til þess að atvinnugreinin sjálf gat komið upp aðstöðu hér heima, svokölluðum stúdíóum og þó að kannski væntingar hefðu jafnvel verið um að það hefði gengið enn betur og fleiri slík, þá er engu að síður sá grunnur sem þar er kominn grundvöllur að því að þessi grein geti vaxið enn frekar. Það sem vakti fyrir okkur sem lögðum áherslu á þessa breytingu var annars vegar að festa í sessi þetta stuðningskerfi sem hefur verið í langan tíma og alveg klárlega haft jákvæð áhrif á þennan geira sem er ekkert auðvelt að skilgreina vegna þess að það eru svo fjölmargir aðilar sem koma að, eins og við sjáum bara ef við horfum til enda á einhverjum kvikmyndum eða sjónvarpsseríum hversu margir aðilar af ólíkum toga koma að slíkri gerð og ekki allt sem við myndum venju samkvæmt skilgreina sem einhvers konar kvikmyndagerð. En til þess að hún eflist, til þess að við getum tekið á móti slíkum verkefnum þá er það alveg rétt sem kom fram í andsvörum áðan, að á sama tíma þurfum við að byggja upp möguleika til menntunar hér heima. Það hefur hingað til gengið ágætlega. Fyrir 50 árum vorum við með bara eina stoð undir efnahag Íslands sem var sjávarútvegur og tókum þá ákvörðun að fara í orkufrekan iðnað, síðan kom ferðaþjónustan af miklum krafti inn sem þriðja stoðin, þá vakti fyrir okkur og við höfum núna í langan tíma verið að horfa á þessar skapandi greinar eða sem sagt mannauðinn sem er síðan alveg óendanlegur akur af fyrirtækjum í ólíkum geirum. Einn af þeim geirum er klárlega kvikmyndagerðin, þessi skapandi hluti sem dregur síðan að sér svo fjölmarga. Satt best að segja þá er áhugi ungs fólks á því að taka þátt í störfum í þessum hluta atvinnulífsins mjög mikill og við með því að skapa þessar aðstæður á Íslandi gætum verið að byggja upp einhvers konar slíka aðstöðu, að Ísland væri einfaldlega eftirsóknarvert, ekki bara vegna náttúrunnar sem við vitum að hefur verið aðdráttarafl lengi vel, heldur líka vegna þess að mannauðurinn í greininni sjálfri væri orðinn það sterkur og öflugur að það myndi hjálpa til. Síðan vitum við auðvitað af afleiddum áhrifum þess að framleiða eða að hér séu teknar upp myndir. Ég held að það komi fram í greinargerðinni með frumvarpinu hversu margir sem ferðast til Íslands nefna það sem eina af orsökum eða ástæðu þess að þeir koma hingað. Þannig að það má eiginlega halda því fram að þessi stuðningur fyrir þá sem líta á þetta allt saman sem kostnað og einhverja krana út úr hagkerfinu, að það sé hluti af einhvers konar markaðssetningu landsins á jákvæðan hátt þar sem það byggist fyrst og fremst á náttúrunni og að einhverju leyti mannlífinu og menningunni sem við þurfum kannski að bæta enn frekar inn í. Það gerist auðvitað með því að íslensk kvikmyndagerð og íslensk sjónvarpsgerð verði enn sterkari, en hún hefur sannarlega verið að blómstra á síðustu árum eins og við þekkjum og höfum séð.

Ég er því fyrst og fremst kominn hingað upp til að þakka fyrir það að ríkisstjórnin, sem mér fannst í upphafi síns máls, og það mátti jafnvel lesa í stjórnarsáttmálanum, væri að íhuga að fara í einhverjar stórfelldar breytingar, niðurskurð á þessum hugmyndum, hefði skipt um skoðun. Mér finnst mikilvægt að menn haldi áfram í þeim takti að byggja upp þessa atvinnugrein. Ég sá það einfaldlega fyrir mér, líklega í aðdraganda kosninganna 2021, að við gætum í raun verið að byggja upp atvinnugrein þar sem við sæjum einhverjar þúsundir manna hafa atvinnu af því að starfa í kringum alla þá miklu atvinnustarfsemi sem kvikmyndagerð, sjónvarpsgerð, skapandi gerð efnis kallar á af ólíkum toga, með menntuðu fólki, með mannafla á Íslandi sem yrði aðdráttarafl í sjálfu sér til að bæta við upplifun af náttúrunni. Síðan gætum við farið að tengja menninguna þar inn í sem myndi hjálpa okkur til að mynda að verja íslenskuna og styrkja íslenskuna sem er líka svo mikilvægt.

Ég get haldið hér endalausa ræðu um jákvæða hluti þessa fyrirkomulags og sýnist og heyrist á þessu frumvarpi að það sé fyrst og fremst verið að skilgreina hugtök upp á nýtt og aðlaga ákveðnar bókhaldsleiðir að þeim kerfum sem menn nota til að meta kröfurnar, endurgreiðslukröfurnar frá fyrirtækjunum innan. Það mun ekki hafa neikvæð áhrif á hversu skilvirkt og einfalt kerfið er því það er jú það sem hefur verið hluti af aðdráttaraflinu til Íslands fyrir stærri fyrirtæki, fyrir stærri verkefni. Í mörgum öðrum löndum er þetta allt of flókið, seinvirkt og satt best að segja þá missa menn oft tímann frá sér þegar það þarf að taka ákvarðanir um slíkt. Við þekkjum það.

Ég kem því hérna fyrst og fremst til þess að lýsa því yfir að við í Framsókn, eins og við höfum gert síðastliðin 26 ár, styðjum þessa aðferðafræði, þetta stuðningskerfi og við lítum satt best að segja á að við séum hér að byggja upp atvinnugrein til framtíðar sem verður ein af þeim stoðum sem stækka hina skapandi grein efnahagsstoðarinnar, þessa fjórðu og fimmtu stoð sem við þurfum svo verulega á að halda til þess að búa til meiri efnahagslegan stöðugleika í landinu.