endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Þessi breyting átti uppruna sinn hjá Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Ég lagði þetta frumvarp fram einmitt eftir ábendingu frá aðilum í kvikmyndageiranum sem höfðu átt samskipti við Grænland sérstaklega í því tilfelli og óskuðu eftir þessu. Mér finnst bara gaman að geta þess þar sem ég veit að hv. þm. Jón Gnarr er líka formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins þannig að ég mun örugglega beina skriflegri fyrirspurn til hæstv. ráðherra. Það gæti verið gaman fyrir okkur Íslendinga að segja frá því, og ég man að ég gerði það á sínum tíma þegar þetta mál fór í gegn, að þarna séum við líka að leggja eitthvað af mörkum inn í vestnorrænt samfélag til að ýta undir skapandi greinar hjá þessum þjóðum og samstarf okkar á því sviði.