dánaraðstoð.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Svo ég komi aðeins inn á það sem hv. þingmaður nefndi varðandi lífslokameðferð og annað, þegar fólk er kvalið hér á landi, ætla ég að geta þess að í skýrslunni sem heilbrigðisráðherra skilaði þinginu í desember 2019 — við samþykktum skýrsluna í desember 2019, hún kom nú reyndar eitthvað seinna — þá ákveður ráðuneytið að fara þá leið að flokka dánaraðstoð sem yfirhugtak ýmissa athafna eða athafnaleysis, eins og það er orðað, þannig að í rauninni er ráðuneytið að flokka lífslokameðferð eins og við þekkjum á líknardeildum og dánaraðstoð undir sama yfirheiti. Mér fannst það mjög áhugavert. Ég hef svolítið horft á þetta, ekki sem annaðhvort eða, heldur bara sem valkvæðan hluta af því hvernig við kveðjum þennan heim eftir mismunandi aðstæðum viðkomandi einstaklinga. En ég veit að það voru ekki allir sáttir við þetta. Ég veit að læknum, sérstaklega þeim sem sinna líknandi meðferð, fannst þetta ekki nægilega gott og ég veit að þeir sem aðhyllast dánaraðstoð höfðu líka eitthvað við þetta að athuga. En það er kannski líka fegurðin í því þegar við tölum um svona flókið mál; við getum haft mismunandi sýn og skoðanir á því.
Hv. þingmaður spyr líka: Hvað þarf að gera? Í fyrsta lagi þá þyrftum við að sameinast um að koma þessari þingsályktun í gegnum þingið og samþykkja hana. Það væri mjög góð byrjun. Þá fengi ráðherra þetta verkefni. Ég hef sjálf aðhyllst hollensku leiðina, eins og ég kalla hana, þ.e. ég hef viljað tala um að fólk sé dauðvona og að það sé kvalið, það séu skilyrðin. Mér líkar vel hollenska leiðin hvað girðingar varðar; það eru tveir læknar sem þurfa að skrifa upp á þetta, heimilislæknir, sem þekkir viðkomandi sjúkling mjög vel, og annar læknir. Það er svo sérstök nefnd sem fer yfir allar þessar beiðnir síðar og það eru ofboðslega fá tilvik þar sem einhverjar athugasemdir hafa verið gerðar við ferlið. (Forseti hringir.) — Ég verð að fá að koma og klára svarið í síðara andsvari.