157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

dánaraðstoð.

23. mál
[18:31]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér tækifæri til að klára svörin mín. Ég hef svolítið aðhyllst þessa hollensku leið og ég myndi sjálf gæta mjög varhuga við þeim leiðum sem eru í boði í sumum fylkjum Bandaríkjanna þar sem læknir getur skrifað upp á einhverjar töflur sem einstaklingur sækir svo í apótekið og bara á heima hjá sér þangað til hann mögulega vill taka þær eða ekki. Ég hef áhyggjur af því að börn gætu nálgast þetta eða að þetta gæti farið í einhverjar óæskilegar hendur, þannig að ég hef t.d. áhyggjur af þeirri leið.

Umræðan um hvort við séum of fá hefur alveg verið tekin. Stóra atriðið, kannski vegna þess hvaðan ég kem, virðulegur forseti, varðandi það að mér finnst að þetta eigi að vera í læknishöndum, snýst um að það sé nokkuð breið sátt hjá læknum um að veita slíka þjónustu. Á móti kemur að við erum það fá, eins og hv. þingmaður nefnir, að það þurfa alls ekki allir læknar að veita slíka þjónustu. Það þarf kannski ekkert rosalega marga lækna sem eru tilbúnir að veita þessa þjónustu. Mér finnst líka mjög mikilvægt fyrir heilbrigðisstarfsfólk að geta þess að enginn sé neyddur til að veita þessa þjónustu sem vill ekki gera það samvisku eða trúar sinnar vegna eða af öðrum ástæðum. Ég held að við getum vel unnið með það. En ástæðan fyrir því líka að ég hef þingsályktunartillöguna töluvert opna og ég er að viðra mín sjónarmið er að mér finnst stóra málið vera að við náum saman um löggjöf um dánaraðstoð. Ég er tilbúin að hlusta á öll sjónarmið og öll rök í þeim efnum og ég held að það þyrfti að svara ýmsum siðferðilegum spurningum til að komast að þeirri niðurstöðu hvað væri svo best fyrir okkur í lagarammanum. En dæmin eru vissulega mörg og við þurfum alls ekki að finna upp hjólið þegar að þessu kemur.