dánaraðstoð.
Herra forseti. Ég fagna því að þessi þingsályktunartillaga sé til umræðu í dag og vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur ekki bara fyrir þrautseigjuna heldur fyrir að leggja málið fram ítrekað, enda er þetta að mínu mati þarft mál og ég er stolt af því að vera einn meðflutningsmanna á þessari tillögu. Ég segi eins og hv. þingmaður sagði hér áðan, að mér þykir alveg ofboðslega vænt um mál og þennan málstað. Við þekkjum, held ég öll, dæmi þess að einstaklingur gangi í gegnum dimma dali í lífinu en dalirnir gerast vart dimmari en lífslok sem ber að með sársaukafullum eða smánandi hætti. Svo eru einnig dæmi þar sem einstaklingar hafa engar skýringar fengið á sínum einkennum, fengið litla meðhöndlun og enda jafnvel á því að taka málin í sínar eigin hendur. Það eru einnig dimmustu dalirnir og við þekkjum þessi dæmi og hræðumst jafnvel sjálf að ganga í gegnum slíka dali því að þegar á hólminn er komið þá er orkan bara af það skornum skammti að við fáum ekkert að kveðja þennan heim á eigin forsendum. Það er fyrir þennan hóp sem ég tel sérstaklega mikilvægt að þessi þingsályktunartillaga nái fram að ganga. Ég fór út í stjórnmál af hugsjón sem kjarnast af frelsi og mannúð og fyrir mér eru fá mál sem kjarna hana jafn skýrt og lögleiðing dánaraðstoðar, það er bæði frelsismál og mannúðarmál.
Forseti. Þingsályktunartillaga þessi kveður ekki á um hvernig staðið skuli að dánaraðstoð heldur leggur það í hendur ráðherra að búa svo um hnútana að löggjöfin verði eins vönduð og á verður kosið. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór vel yfir þau sjónarmið áðan í sinni ræðu. Þó eru nokkur atriði mjög skýr í mínum huga er varða lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi sem ég vil fá að koma á framfæri hér og inn í þá vinnu sem vonandi tekur við að þessari umræðu lokinni. Á 154. löggjafarþingi árið 2024 gerði ég atlögu að því að smíða frumvarp sem hefði lögleitt dánaraðstoð hér á Íslandi.
Í greinargerð sem fylgir þessari þingsályktunartillögu segir að flutningsmenn hennar telji tímabært, með leyfi forseta, „að dánaraðstoð verði heimiluð hér á landi samkvæmt ströngum skilyrðum í samræmi við lagaákvæði í Hollandi og öðrum ríkjum sem heimila dánaraðstoð.“ Bara svo ég segi það þá tel ég það vera rétt skref að horfa til Hollands í þessum efnum, til Benelux-landanna, en að ráðherra taki sérstaklega til skoðunar hvort börnum skuli heimil dánaraðstoð sem ég tel ekki tímabært, en það er heimilt í Hollandi. Ég tel einfaldlega að það þurfi að vera komin reynsla af slíkri löggjöf áður en við förum að stíga þau skref af því að sú umræða er bara af allt öðrum meiði og löggjöfin í kringum það mun snúnari.
Svo þarf einnig að taka til skoðunar hve langur tími má líða frá því að ósk um dánaraðstoð kemur fram þar til að hún er veitt. Sá tími má að mínu mati hvorki vera of langur né of skammur. Það er bæði vegna áhyggna þeirra sem telja ósk um dánaraðstoð vera stundarbrjálæði eða ákvörðun sem sé tekin vegna þrýstings annarra. En tíminn má heldur ekki vera of langur af því að sjúklingurinn er sannarlega að upplifa þjáningar. Það er forsendan fyrir því að viðkomandi óskar eftir dánaraðstoð. Þá tel ég líka rétt að hvorki verði gerð krafa á sjúklinga að þiggja dánaraðstoð né krafa á lækni að veita hana eða á aðra heilbrigðisstarfsmenn, verði það niðurstaðan. Það er nauðsynlegt að undirstrika að heilbrigðisstarfsfólki sé ekki skylt að veita þessa aðstoð af því að það eru enn þá margir læknar sem eru ekki fylgjandi dánaraðstoð og verða að fá að meta sjálfir hvort þeir treysti sér í það eða vilji það ekki af trúarlegum eða siðferðislegum ástæðum og jafnvel læknar sem eru fylgjandi hugmyndafræðinni þarna að baki treysta sér ekkert endilega til að vera hluti af framkvæmdinni. Það er því mjög mikilvægt að þeim sjónarmiðum verði haldið til haga.
Áðan vék hv. þingmaður að eftirlitsnefnd sem er til að mynda í Hollandi og ég tel mjög mikilvægt að það sé einnig gert hér, að við ræðum mögulega ábyrgð lækna eða heilbrigðisstarfsfólks á andláti sjúklings af því að það er áfall fyrir heilbrigðisstarfsfólk og aðstandendur sjúklinga þegar vafamál koma upp um dauðdaga. Við þekkjum alveg dæmi þess. Þess vegna tel ég mikilvægt að við skoðum í þessari vinnu hvernig við setjum á fót eftirlitsnefnd sem skoðar vel hvert tilfelli dánaraðstoðar og athugar hvort framkvæmdin hafi verið að öllu leyti í samræmi við lög. Það er ekki bara til að draga úr vafanum sem fólk finnur fyrir þegar dánaraðstoð er framkvæmd heldur til að vernda heilbrigðisstarfsfólk fyrir áfalli og ásökunum og vernda sjúklinga og aðstandendur fyrir misnotkun.
Forseti. Meiri hluti landsmanna er hlynntur dánaraðstoð, meiri hluti heilbrigðisstarfsfólks og stuðningur færist bara í aukana með árunum og það eru engar tölur sem sýna fram á að hann sé að dala að nokkru leyti. Það er auðvitað ekki góð pólitík að taka bara ákvarðanir af því að þær eru vinsælar, en ég held að það sé öllum ljóst að talsmenn dánaraðstoðar eru það ekki bara vegna þess að það er vinsæl afstaða. En þessar mælingar gefa góða mynd af því hver samfélagsgerðin er, hver vilji fólksins í landinu er og ég tel mjög mikilvægt að löggjafinn taki tillit til þess vilja og þess vegna sé þetta enn brýnna en áður. Fyrir skemmstu voru ekki mörg lönd sem heimiluðu einhvers konar útfærslu á dánaraðstoð en nú eru þau ansi mörg og hv. þingmaður taldi þau upp hér áðan. Þetta eru 16 lönd og einnig 11 ríki Bandaríkjanna, m.a. höfuðborgin Washington. Vinna að lögleiðingu er komin langt á leið í Englandi en neðri deild breska þingsins hefur samþykkt frumvarp þess efnis sem bíður nú meðferðar lávarðanna þar og skoska þingið er að skoða þetta. Verði þessi þingsályktunartillaga að veruleika þá gæti Ísland orðið fyrst Norðurlandanna til að lögleiða dánaraðstoð, ef við verðum á undan Danmörku og Finnlandi sem eru nú að skoða málið í einhverri mynd. Ísland hefur áður verið leiðandi í mótun stjórnmála á Norðurlöndunum. Við þurfum ekkert alltaf að bíða eftir því hvernig hin Norðurlöndin gera hlutina. Þetta hefur sýnt sig í jafnréttismálum, þetta hefur sýnt sig með viðurkenningu á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og í mínum huga er þetta spurning um að þora að halda áfram að vera leiðandi afl gagnvart Norðurlöndunum þótt við yrðum kannski ekki fyrst í heimi til að lögleiða dánaraðstoð.
Herra forseti. Aftur vil ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að leggja fram þessa tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar. Í mínum huga er þetta bæði frelsismál og mannúðarmál. Þetta snertir hvern einasta landsmann. Við þekkjum öll eða munum öll þekkja sorgarferlið og munum á endanum öll kveðja okkar jarðnesku tilvist og ég myndi vilja fá að gera það á mínum eigin forsendum og gera aðstandendum mínum sorgina auðveldari þó að hún verði auðvitað aldrei auðveld. Það er nákvæmlega þess vegna sem ég styð þessa þingsályktunartillögu heils hugar.