157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

dánaraðstoð.

23. mál
[18:55]
Horfa

Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Til að svara fyrri spurningunni þá tel ég að ég og hv. þingmaður séum bara alveg sammála um að þessi rök geti haldið áfram endalaust og varðandi mismunandi álag á heilbrigðiskerfið þá munu alltaf koma nýjar áskoranir, bæði fyrirséðar og ófyrirséðar. Ég held að þetta mál um dánaraðstoð sé til í algjöru tómarúmi utan annarra áskorana heilbrigðiskerfisins sem við vitum að eru margar. Þegar kemur að síðari spurningunni varðandi þau rök sem ég hef heyrt líka, sem sagt að stilla dánaraðstoð einhvern veginn upp gegn líknandi meðferð og lífslokameðferð, þá tel ég það vera kannski svolítið byggt á röngum forsendum. Ég tel að dánaraðstoð geti vel átt heima undir slíkri meðferð og þurfi alls ekki að draga þróttinn úr þessari sívaxandi grein læknisfræðinnar sem er mjög mikilvæg. Ég tel að það sé algjörlega þannig að það séu alls ekki allir sjúklingar sem njóta slíkrar meðferðar sem myndu fá dánaraðstoð og þetta þjóni hvort öðru mjög vel. Ég tel að það að stilla þessu upp sem einhverjum andstæðum sé kannski byggt á röngum forsendum. Að mínu mati á þetta að vera einn af þeim valkostum sem þú hefur við lífslok. Það eru margir sem myndu ekki vilja þetta en það er fólk sem myndi vilja þetta. Þetta snýst um valfrelsi og það er sorglegt að sjá dæmi þess þegar fólk ákveður frekar að taka málin í eigin hendur og ég tel að þeim tilfellum myndi fækka. Ég held að við tölum ekki nógu mikið um þau sjónarmið, fókusum of mikið á hvað við værum að gera rangt með þessu, sem ég tel að sé lítið á móti því sem við værum í rauninni að græða á þessu sem samfélag. Ég held að við myndum lækka rosalega mikið tíðni áfallastreitu og dempa sorgina í samfélaginu, verði þetta valmöguleiki.