157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

umferðarlög.

64. mál
[19:16]
Horfa

Flm. (Þorgrímur Sigmundsson) (M):

Herra forseti, árnaðaróskir með nýja hlutverkið. Ég flyt hér frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019, oft kallað endurmenntun atvinnubílstjóra. Flutningsmenn ásamt þeim sem hér stendur eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Ingibjörg Davíðsdóttir. Frumvarp þetta er lagt fram í annað sinn. Áður var það lagt fram á 156. þingi og er nú lagt fram óbreytt.

Atvinnubílstjórar sem eru með réttindi í flokki C, C1, D og D1 þurfa að endurnýja atvinnuréttindi sín á fimm ára fresti. Til að viðhalda réttindum þurfa bílstjórar að sitja fimm námskeið til endurmenntunar á fimm ára fresti. Námskeiðin eru samtals 35 klukkustundir.

Ákvæði um endurmenntun ökumanna sem stjórna ökutækjum í atvinnuskyni var EES-innleiðing sem sjaldnast á við hér á landi. Mikill hluti þeirra sem starfa sem atvinnubílstjórar hér á landi keyrir allan sinn starfsferil innan sama regluverks og því mætti telja óþarft fyrir atvinnubílstjóra að sitja endurmenntunarnámskeið sem hugsað er fyrir milliríkjaakstur á Evrópska efnahagssvæðinu.

Tími og kostnaður við endurmenntunarnámskeið er íþyngjandi, bæði fyrir bílstjóra og atvinnulíf, þar sem sá tími sem bílstjórar missa úr vinnu er dýrmætur.

Markmiðið með breytingunni er að auðvelda starfsumhverfi fyrir atvinnubílstjóra og íþyngja þeim ekki í störfum sínum, og auðvitað ekki heldur fyrirtækjum, og draga úr kostnaði í atvinnulífinu. Auk þess var innleiðing þessi á sínum tíma atlaga að atvinnufrelsi bílstjóra. Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.