umferðarlög.
Virðulegur forseti, til hamingju með nýtt hlutverk. Ég vil fagna þessu frumvarpi, það er til mikilla bóta. Ég vil kvarta yfir því við hv. þm. Þorgrím Sigmundsson að hafa ekki verið boðið að vera á þessu frumvarpi. Ef hv. þingmaður þarf að bera það upp aftur vonast ég til að fá að vera meðflutningsmaður á þessu góða máli. Þetta er einmitt dæmigert mál þar sem við höfum innleitt einhvers konar reglugerðir og íþyngjandi kvaðir á atvinnulífið, og í þessu tilfelli atvinnubílstjóra, og skyldað fólk sem alla daga vinnur við sína iðju — ef einhverjir eru sérfræðingar á sínu sviði eru það líklega þessir menn og konur, sérfræðingar í því sem þau eru að gera, og þá er svolítið sérstakt að þurfa að fara á fimm ára fresti á svona námskeið og ég sé ekki í fljótu bragði hverju það ætti að bæta við. Fimm námskeið og þetta eru samtals 35 klukkustundir eins og kemur fram í greinargerð hjá hv. þingmanni.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann að á þessu sviði geti verið fleiri svona mál sem væri hægt að taka á til að einfalda líf þeirra sem eru í atvinnulífinu, eins og þetta sem varðar atvinnubílstjóra? Eru einhver fleiri svona atriði sem við gætum mögulega horft til?