umferðarlög.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvatningin til meðflutnings, þurfi að endurtaka þetta mál, er móttekin og að sjálfsögðu verður orðið við henni. Að því sögðu tek ég undir með hv. þingmanni í því sem kom fram í hans máli að þetta er einmitt svona dæmigert mál þar sem við erum að ástæðulausu að innleiða eitthvað sem á ekkert við og er alger óþarfi. Af því að hv. þingmaður vék að því að þarna væru sérfræðingarnir settir í endurmenntun sem er nálægt því einn þriðji af heildarnáminu sem stéttin þurfti að fara í — ég sæi það fyrir mér ef aðrar stéttir fengju á sig þær kvaðir að þurfa á fimm ára fresti að taka einn þriðja af heildarnámi sínu upp aftur; bara svona til að gera mönnum sem hafa áhuga á málinu enn betur grein fyrir því hversu glórulaus innleiðing þetta var á sínum tíma. En við þurfum hins vegar sem þjóð, svo að það komi fram, að bjóða upp á þetta námskeið. Það þarf bara að vera valkvætt. Það kunna að vera bílstjórar í íslenska flotanum sem þurfa að fara á svona námskeið, til að mynda vegna þess að þeir hyggjast flytja vöru með Norrænu inn á Evrópska efnahagssvæðið og þar er þessa krafist. Af því að hv. þingmaður spurði hvort ég sæi fleiri slík verkefni þá held ég að þetta sé hluti af því svari.
En mig langar að deila einu með hv. þingmanni, af því að ég á svolítinn tíma eftir, til að setja þetta í enn súrrealískara samhengi. Dæmið er um mann sem er kannski búinn að keyra í 30 ár og hefur setið 35 klukkustunda námskeið í endurmenntun, mestmegnis reyndar á YouTube, til að byrja með — ég sat slíkt námskeið. Þá koma spurningar eins og þessi: Það þarf að skoða eyðslu yfir lengri tíma til að sjá hvort við séum að ná árangri? Já eða nei? Það er mikið öryggi í því að hafa gott bil á milli bíla? Já eða nei? Þingheimur, herra forseti, auðvitað gengur þetta ekki upp. Við þurfum að losna við þetta út úr okkar regluverki.