157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

umferðarlög.

64. mál
[19:23]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans fyrra svar og fyrir að lesa upp spurningar sem verið er að spyrja atvinnubílstjóra að eftir jafnvel áratuga starfsreynslu; að vera að bera fram slíkar spurningar og að það sé skilyrði fyrir því að halda áfram störfum. Ég tek líka undir það með hv. þingmanni að auðvitað á þetta að vera valkvætt. Það er allt annað mál að slík námskeið séu valkvæð. Ef menn hyggjast keyra inni á Evrópska efnahagssvæðinu, þar sem þetta er krafan, þá taka menn slíkt námskeið.

En mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann að það sé þannig að ef þetta frumvarp fer í gegn, sem ég vona, munum við fá athugasemdir að utan? Ekki það að ég held að Alþingi sé kannski ekki jafn móttækilegt fyrir athugasemdum að utan akkúrat þessa dagana eins og stundum áður í ljósi nýjustu vendinga hjá Evrópusambandinu gagnvart Íslandi og frændum okkar Norðmönnum. En ef allt væri eðlilegt telur hann þá að ef við myndum innleiða þessi lög kæmu athugasemdir út frá því að við værum ekki að starfa eftir þessari EES-reglugerð eða innleiðingu eða hvað þetta heitir nú allt saman?