157. löggjafarþing — 35. fundur,  19. nóv. 2025.

umferðarlög.

64. mál
[19:24]
Horfa

Flm. (Þorgrímur Sigmundsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir seinna andsvar. Stutta svarið er: Já, ég held að við myndum fá athugasemdir. Ég deili þó einnig því sem hv. þingmaður nefndi hér, þ.e. ég held að í ljósi nýlegra atburða sé þingheimi kannski að verða betur ljóst að við þurfum að taka sjálfstæðar ákvarðanir hér. Það liggur fyrir að þetta átti alls ekkert við, þessi innleiðing; hún átti alls ekkert við Ísland. Hún er beinlínis samin fyrir milliríkjaakstur. Það var ekkert mál að fá undanþágu sem eyja á sömu forsendum og við fengum undanþágur gagnvart reglum er varða járnbrautir eða skipaskurði. Svarið er já, en ég held að það sé einfalt að verjast þessu. Við nýtum þá bara þessa mjög svo vannýttu sameiginlegu EES-nefnd. Þar rökstyðjum við okkar mál og útskýrum fyrir meginlandinu og fulltrúum þess hvers vegna þetta eigi ekki við hér en tryggjum jafnframt aðgengi bílstjóra sem hyggjast til að mynda keyra og flytja út vörur héðan með Norrænu að þessu námi, eins og ég nefndi áðan.

En ég skynjaði í fyrra andsvari mínu að þingmenn, sem eru nú ekki ýkja margir hér í salnum, höfðu lúmskt gaman af spurningunum sem verið er að spyrja bílstjóra með áratugareynslu og þær komu þeim kannski á óvart. Það er verið að spyrja bílstjóra sem eru kannski að keyra 150.000 km á ári við allar aðstæður sem bjóðast á landinu, niður í Seyðisfjörð að vetrarlagi til að mynda; það er ekkert öllum sem myndi líka að fara niður þá brekku verandi kominn yfir 40 tonn. Sá sami bílstjóri, nýkominn niður á Seyðisfjörð, ætti þá að geta verið rólegur af því að hann gat svarað spurningum eins og þessum: Það fylgir því minna stress að hafa gott bil á milli bíla? Já eða nei? Það er alltaf góð hugmynd að keyra hálfslitin vetrardekk út á sumrin? Rétt eða rangt? Myndavélar taka á sig minni vind en stórir speglar? Rétt eða rangt? — Nei, það er löngu kominn tími til þess að vera í einhverju sambandi við raunheima og kippa þessu til baka, herra forseti. Ef Evrópusambandið gerir athugasemdir við það þá tökum við þann slag.