157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

fyrirkomulag almannavarna.

[10:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Væntanlega er hv. þingmaður að vísa til beiðni ríkisins um setningu dómkvaddra matsmanna vegna kostnaðar ríkisins við varnargarða í tengslum við jarðhræringarnar á Reykjanesi. Það er ekki markmið ríkisins að gera neinar grundvallarbreytingar á því fyrirkomulagi sem verið hefur. Það er hins vegar mjög mikilvægt að haldið sé utan um þann kostnað sem hefur fallið til vegna varnargarðanna og þann ábata sem af því starfi hefur verið. Ástæðan fyrir því er einföld; þessi viðbrögð við eldgosavá eru íslensk uppfinning og það að fá mat á ábatann af slíkum aðgerðum skiptir gríðarlega miklu máli þegar kemur að því að verja hagsmuni Íslands í endurtryggingum á mögulegum tjónum. Uppsetning varnarmannvirkja vegna annarrar náttúruvár, svo sem eins og snjóflóða, hefur áhrif á kjör Náttúruhamfaratryggingar Íslands vegna endurtrygginga á snjóflóðum á þeim svæðum sem eru útsett fyrir slíka hættu. Sambærilegt tillit til fjárfestinga ríkisins eða getu til fjárfestinga er ekki til staðar hvað varðar eldgosavá, enda ákaflega erfitt að sjá hvar hún verður, spá hvar upp kemur og hvernig hægt er að bregðast við. En mikilvægt er að viðurkennt sé að íslensk stjórnvöld hafa tæknilegu getuna til þess einmitt að draga úr þeirri vá þannig að við njótum eðlilegra kjara í endurtryggingum vegna náttúruhamfara.