aðgerðir í efnahagsmálum.
Frú forseti. Nú styttist í 2. umræðu fjárlaga, sem þegar er orðið ljóst að mun þurfa að breyta töluvert enda standast forsendur fjárlagafrumvarpsins ekki lengur. Seðlabankinn hefur að vísu tilkynnt um dálitla vaxtalækkun en eins og bankinn útskýrði þá kom það ekki til af góðu. Það var í ljósi aðstæðna á húsnæðismarkaði, talað var um frost á lánamarkaði og jafnframt minnt á að hvert áfallið hefur rekið annað í íslensku efnahagslífi á þessu verðmætasköpunarhausti.
Ætlar hæstv. fjármálaráðherra að láta Seðlabankann einan um viðbrögðin eða er von á viðbrögðum frá ríkisstjórninni, frá stjórnarmeirihlutanum, í samræmi við tilefnið? Ég veit að málið er komið til þingsins en hæstv. fjármálaráðherra þekkir það jafn vel og ég að það eru engar umtalsverðar breytingar gerðar á fjárlagafrumvarpinu án þess að það sé gert í samráði við fjármálaráðherrann og ráðuneytið. Oft vilja nú koma meldingar frá fjármálaráðherranum til fjárlaganefndarinnar þegar tilefni telst til að bregðast við og nú er svo sannarlega tilefni til að bregðast við. Megum við ekki eiga von á því? Er það ekki alveg öruggt, spyr ég hæstv. fjármálaráðherra, að tekið verði tillit til aðstæðna, að horfið verði frá áformum um skattahækkanir og jafnframt leitað leiða til að spara og draga úr óþarfa óhagkvæmum útgjöldum?