aðgerðir í efnahagsmálum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir spurninguna og get staðfest við hann að ég mun hér eftir sem hingað til leitast við að sýna aðhald í rekstri hins opinbera. Nú hafa forsendur fjárlaga verið endurskoðaðar í samræmi við nýútkomna hagspá Hagstofu Íslands sem var ekki mjög frábrugðin hagspá Seðlabanka Íslands og til fjárlaganefndar eru komnar allar þær forsendur. Einhverjar breytingar verða gerðar í meðförum þingsins á fjárlögum eins og alltaf er gert og við munum fylgja því eftir. Nú hygg ég að flokkur hv. þingmanns eigi fulltrúa í þeirri nefnd sem hann veit að hefur verið upplýst um endurskoðaðar forsendur fjárlaga.