aðgerðir í efnahagsmálum.
Frú forseti. Nú minni ég aftur hæstv. fjármálaráðherra á að hann er ekki lengur áhorfandi að atburðarásinni í íslensku efnahagslífi, hann er gerandi. Það hlýtur að vera að við fáum eitthvað meira frá hæstv. fjármálaráðherra við þær aðstæður sem nú eru ríkjandi í íslensku efnahagslífi en það að jú, vissulega verði eflaust gerðar einhverjar breytingar á fjárlagafrumvarpinu, eins og alltaf er. Aðstæður núna kalla á inngrip. Þær kalla á að ríkisstjórnin sýni að hún sé meðvituð um þá hættu sem ekki aðeins vofir yfir heldur er byrjuð að raungerast ítrekað í efnahagslífinu. Þetta kallar á forystu af hálfu hæstv. fjármálaráðherra, viðbrögð. Er ekki von á neinum viðbótarviðbrögðum frá hæstv. ráðherra í samræmi við tilefnið?