staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá 1. minni hluta utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024, nr. 70/2025, og nr. 118/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá utanríkisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024 frá 15. mars 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1238 frá 20. júní 2019 um samevrópska séreignarsparnaðarafurð.
2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 70/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2033 frá 27. nóvember 2019 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki og breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010, (ESB) nr. 575/2013, (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 806/2014.
b. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2034 frá 27. nóvember 2019 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum og breytingu á tilskipunum 2002/87/EB, 2009/65/EB, 2011/61/ESB, 2013/36/ESB, 2014/59/ESB og 2014/65/ESB.
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2025 frá 8. maí 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 frá 15. mars 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/760 að því er varðar kröfur um fjárfestingarstefnu og rekstrarskilyrði evrópskra langtímafjárfestingarsjóða og gildissvið hæfra fjárfestingareigna, kröfur um samsetningu og fjölbreytileika eignasafna og lántöku í reiðufé og aðrar sjóðsreglur.
Framsetning tillögunnar telst að mati 1. minni hluta vera í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. 1. minni hluti leggur til að tillagan verði samþykkt.
Undir þetta rita hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason, sem var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild, hann er framsögumaður málsins, svo er það sá sem hér stendur, Pawel Bartoszek, formaður, Dagbjört Hákonardóttir og Sverrir Bergmann Magnússon.
Þetta snýst í stuttu máli um að innleiða þessa þrjá hluti inn í EES-samninginn, annars vegar þessar reglur sem varða PEPP og búa til valkosti í lífeyrissparnaði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins. Í öðru lagi breytingar og sú varfærnisregla sem er þá til einföldunar. Í þriðja lagi þessar reglur sem varða langtímafjárfestasjóði og frumvarp þess efnis sem hefur þegar hefur verið lagt fyrir þingið. Þetta hefur á fyrri stigum málsins farið í gegnum samráðsferli og einnig verði tekið fyrir í nefndinni og ekkert í umfjöllun utanríkismálanefndar sem kallar á það að okkar mati að fresta inntöku þessara gerða inn í EES-samninginn.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.