157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[13:57]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir umfjöllun um málið og get að vissu leyti tekið undir það að í nefndinni hafi samstarf um málið verið prýðilegt. Það fór að lokum svo að við fengum t.d. ungmenni til að ræða um þessa þætti. Þótt maður geti ekki vísað til þess tals hér er sjálfsagt að vísa t.d. í umsögn Verzlunarskóla Íslands þar sem goldið er varhuga við þessum breytingum um innritunina. Menn eru að tala þar um að skilaboð löggjafans séu að framhaldsskólarnir fari meira í þá átt eða alla vega að þessi heimild verði veitt, og maður les ákveðna hvatningu í þá veru úr greinargerðinni sem er enn þá óbreytt. Þótt þetta sé aðeins heimild og engin skylda les maður ákveðna hvatningu í greinargerðinni til að fara t.d. í þá átt að fleiri skólar axli, eins og því er lýst, ábyrgð á fjölbreytileika og annað eins. Þetta hugtak, fjölbreytileiki og fjölbreytni, er svona svolítið hált hugtak. Maður veit ekki nákvæmlega til hvers er yfirleitt vísað af því að fólk hefur nefnt kyn, þjóðernisuppruna eða fötlun o.s.frv. Þetta eru svona þessi klassísku hugtök þegar við erum að tala um þennan fjölbreytileika, þegar þetta er notað í þessari pólitísku merkingu. Hér er aftur, í nefndaráliti meiri hlutans, talað um að það eigi að auka fjölbreytni í nemendahópnum. Ég væri til í að fá hv. þingmann til að leggja eitthvert mat á það til hvaða fjölbreytileika eða fjölbreytni er vísað í nemendahópi með þessu, hvort hv. þingmaður gæti lýst því hvaða fjölbreytni er verið að ræða um hér.