verndartollar ESB á kísiljárn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta voru vissulega þung skref sem voru tekin hér í síðustu viku. Ríkisstjórn Íslands hefur komið því mjög skilmerkilega til skila að við erum verulega ósátt við þessa ákvörðun Evrópusambandsins að undanskilja okkur ekki frá umræddum ráðstöfunum. Það verður auðvitað að hafa það í huga að þrátt fyrir þessa stöðu sem við finnum okkur í þá er sú útfærsla sem snýr að landinu ákveðinn varnarsigur fyrir okkur. Við erum að fá 75% í kvóta og viðmiðunarverðið, sem mun hækka líklega þó að það sé ekkert hægt að fullyrða um það, verðið í Evrópu almennt á þessari vöru sem m.a. er verið að framleiða hér, gæti gert það að verkum að fyrirtæki komi jafnvel sterkari út úr þessari stöðu en áður. Það breytir því ekki, og ég tek undir með hv. þingmanni, að þetta er alvarleg ákvörðun og það liggur fyrir.
Við höfum sagt að við munum gera allt til þess að vinda ofan af þessu máli. Þetta er tímabundin ráðstöfun og við munum gera allt til þess að vinda ofan af þessu máli. Hitt er síðan annað mál hvað gerist næst. Spurningin sem við hljótum að velta fyrir okkur, er: Hvað viljum við að gerist næst? Viljum við að þetta eyðileggi EES-samninginn? Viljum við að þetta skapi fordæmi? Viljum við fá yfirlýsingar frá Ursulu von der Leyen um að þetta þýði að EES-samningurinn sé kominn út í horn? Eða erum við ekki í þessum erfiðu aðstæðum a.m.k. ánægð að heyra að þetta voru þung skref fyrir Evrópusambandið að taka? Þetta var ekki að frumkvæði Ursulu von der Leyen heldur aðildarríkja og þetta er ekki stef sem við munum búast við á næstu árum. Við þurfum auðvitað að standa vörð líka sjálf um EES-samninginn því við viljum ekki finna okkur í þeirri stöðu að við fáum þau skilaboð frá hæstráðendum þarna og aðildarríkjum — ég hef m.a. rætt við leiðtoga þeirra um að þetta sé ekki fordæmisgefandi — að við séum í annarri stöðu en raun ber vitni. (Forseti hringir.) Síðan er það auðvitað túlkunaratriði það sem hv. þingmaður ræðir hér. En er það það sem við viljum? Ég held ekki.