157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísiljárn.

[15:08]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra segir hér: Við þurfum að standa vörð um EES-samninginn. Í heila 11 mánuði lá fyrir að Evrópusambandið hygðist ganga þessa leið. Hæstv. forsætisráðherra lýsir í viðtali við Morgunblaðið hagsmunagæslu ríkisstjórnarinnar þannig að málið hafi verið rætt á mörgum fundum, í símtölum við forsætisráðherra Noregs og að allt hafi verið gert sem mögulega var hægt að gera. Á sama tíma liggur ekkert fyrir um að mótað hafi verið skýrt viðbragð við þessari niðurstöðu, engin sameiginleg stefna með Alþingi og engin sýn á það hvernig tryggja ætti að EES-samningurinn yrði virtur í verki. Eigum við virkilega að láta eins og ekkert hafi í skorist?

Virðulegi forseti. Þegar um er að ræða eitt stærsta hagsmunamál íslensks atvinnulífs á undanförnum árum dugar ekki að segja eftir á að menn hafi rætt málin af mikilli alvöru. Íslenskt samfélag á rétt á að vita nákvæmlega í hverju hagsmunagæslan fólst. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Telur hún (Forseti hringir.) að hagsmunagæsla, sem hvorki tryggði undanþágu fyrir Ísland né sýndi skýr viðbrögð eftir niðurstöðuna, (Forseti hringir.) standist þær kröfur sem gera verður til ríkisstjórnar sem segist verja EES-samninginn?