157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

verndartollar ESB á kísiljárn.

[15:09]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við öll hér inni stöndum saman í þessu máli. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það er rætt hér um Evrópusambandið, það er stundum rætt m.a., ótrúlegt en satt, um stuðning við Úkraínu og það er rætt um alþjóðamál, en ég hefði haldið að við flest hér inni ættum að standa saman þegar kemur að því að verja EES-samninginn. Þetta eru vonbrigði. Við höfum lýst því yfir að þetta séu vonbrigði. Við stöndum hins vegar frammi fyrir því að við erum ekki ein að lenda í þessu. Norðmenn eru að lenda í þessu, sem eru með margt um umfangsmeiri framleiðslu en við á þessari vöru og með fleiri einstaklinga sem geta staðist slíka hagsmunagæslu. Við vorum með þeim í liði. Við stigum þessi skref með þeim. Engu að síður finnum við fyrir því að við erum í þessari stöðu. Ég skil alveg að það sé vilji hér til að slá einhverjar pólitískar keilur í þessu máli en ég vil bara segja: Þarna úti er fylgst með því hvernig við ræðum um þennan samning, hvaða væntingar við höfum til samningsins, og skilaboðin frá íslenskum stjórnvöldum eru að við viljum að hann standi. Við viljum halda honum virkum og þó að við séum ósátt við þetta erum við ekki með þá óskhyggju (Forseti hringir.) að þetta muni leiða til frekari neikvæðra afleiðinga. Við þurfum að standa saman hér inni um EES-samninginn. (Gripið fram í.)