almennar skattahækkanir og álagning refsiskatta.
Frú forseti. Það hefur átt sér stað mjög virk hagsmunagæsla gagnvart EES á þessu kjörtímabili. Það liggur alveg fyrir. Það liggur alveg fyrir að þessi ríkisstjórn, þrátt fyrir að hún verji EES-samninginn, stundar mjög öfluga hagsmunabaráttu og það munum við áfram gera.
Varðandi umrætt mál um flugsamgöngur er það þannig að sú undanþága sem fékkst á sínum tíma er ekki runnin út en það stendur núna yfir vinna með okkar fulltrúum í Brussel og á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins sem snýr að því að vinna í frekari undanþágum. Þetta er því bara vinna sem er í gangi og við liggjum ekki flöt gagnvart því. Við áttum okkur alveg á því að við búum við ákveðna sérstöðu hér vegna þess að við erum eyja í Norður-Atlantshafi, þannig að við erum ekki komin á þann stað að það sé komin endanleg niðurstaða í því. En hv. þingmaður þarf ekki að hafa áhyggjur af því þrátt fyrir að við viljum virða EES-samninginn að við stöndum ekki vörð um hagsmuni Íslands. Það verðum við að sjálfsögðu að gera.