umfjöllun ráðherra um niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Virðulegur forseti. Í síðustu viku fullyrti hæstv. mennta- og barnamálaráðherra í pontu Alþingis að ekki væru merki um aukna vímuefnaneyslu ungmenna á árunum 2023–2025. Morgunblaðið segir hins vegar frá því að samkvæmt skýrslu Barna- og fjölskyldustofu fjölgaði tilkynningum um vímuefnaneyslu barna um 60% á milli áranna 2023 og 2024. Hæstv. ráðherra brást ókvæða við og notaði vefsíðu Stjórnarráðsins til að væna fjölmiðilinn um rangfærslur og upplýsingaóreiðu fyrir það eitt að benda á að fullyrðing ráðherrans væri ekki í samræmi við skýrslu Barna- og fjölskyldustofu. Trúnaðarsamskipti við blaðið voru meira að segja birt. Tilkynningunni fylgdi svo almenn fordæming á fréttaflutningi blaðsins þar sem harðlega var gagnrýnt að blaðið hefði skrifað með gagnrýnum hætti um málefni ráðuneytisins en ekki jákvæðum.
Virðulegur forseti. Það er ekki boðlegt að ráðherrar noti vefsvæði Stjórnarráðsins sem sína persónulegu bloggsíðu í þeim tilgangi að ata fjölmiðla auri og því síður að nota opinbert fé til að kosta bloggfærsluna sérstaklega. (Félmrh.: En ræðustól Alþingis? )Því spyr ég hæstv. ráðherra: Er þetta það sem koma skal; óþekkir fjölmiðlar fá það óþvegið í skoðanapistlum á bloggi fólksins á kostnað skattgreiðenda?