umfjöllun ráðherra um niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Fyrst vil ég segja að ég veit vel að það er margt í ólagi í okkar samfélagi og kerfum og verk að vinna víða, ekki síst í erfiðum málum sem lúta að börnum í vanda. Á mannréttindadegi barna í síðustu viku vildi ég nota tækifærið í þessum sal til að draga fram eitthvað jákvætt líka. Í ræðu minni vísaði ég í umfangsmestu rannsókn sem hefur verið gerð um neyslu ungs fólks, Íslensku æskulýðsrannsóknina, sem tók til 25.000 barna. Þar kemur skýrt fram að almenn neysla ungs fólks hefur bæði dregist saman undanfarna áratugi og einnig undanfarin tvö ár. Ég leyfi mér að hrósa fólki fyrir vel unnin störf í forvörnum. Síðan kemur þessi sérkennilega umfjöllun Morgunblaðsins að þessari umræðu og þar er beinlínis gefið í skyn að ég hafi farið með rangt mál hvað þetta varðar, að neyslan hafi víst aukist. Við í ráðuneytinu báðum Morgunblaðið að leiðrétta umfjöllunina hvað þetta varðaði en Morgunblaðið neitaði því. Það er þess vegna sem við sendum inn aðra athugasemd, enda málið alvarlegt, og þá bentum við líka á fleiri dæmi um sérkennilegan málflutning þessa miðils.
Það skiptir máli að vísað sé í rétt gögn. Annað kann að vekja ótta, skapa misskilning og grafa undan því góða starfi sem þó er unnið. Og enn neitar Morgunblaðið að taka eitthvert tillit til þess sem við í ráðuneytinu erum að reyna að draga fram, sem er staðreynd um neyslu barna samkvæmt bestu mögulegu rannsóknum. Ég veit að allir hér inni átta sig á að ýmis upplýsingaóreiða er í gangi í fjölmiðlum, hér á landi sem annars staðar. Okkur í ráðuneytinu ber að bregðast við þeirri upplýsingaóreiðu og koma réttum upplýsingum á framfæri og sérstaklega, akkúrat sérstaklega þegar það varðar börn.