157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

umfjöllun ráðherra um niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

[15:29]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það getur vel gerst að tvær rannsóknir gefi sitt hvora niðurstöðuna en það er þó aldrei rangfærsla að vekja athygli á tilvist þeirra beggja. Fullyrðing ráðherra er ekki staðreynd heldur byggir hún á rannsókn sem er á öndverðum meiði við hina, við opinberu skýrsluna. Í rannsókninni sem ráðherrann vísar til er t.d. tekið fram að óvíst sé að viðkvæmustu hóparnir hafi verið meðal svarenda. Ekkert sem kom fram í fréttum Morgunblaðsins er efnislega rangt. Glæpurinn var að aðaláherslan var lögð á það sem fréttnæmt var í stað þess sem hentaði ráðherra. Enn ein árás Flokks fólksins á fjölmiðla.

Virðulegur forseti. Landsmönnum er að verða það ljóst að það er allt í steik í ráðuneyti hæstv. ráðherra og það eina sem kemur frá ráðuneytinu er skætingur sem kostaður er af skattgreiðendum. Umbjóðendur hæstv. ráðherra, börn og ungmenni þessa lands, eiga betra skilið.