157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

staðan á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

[15:34]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og áhugann. Ég deili áhyggjum þingmannsins af stöðunni sem uppi er á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta er ekki nýr vandi, hann er langvarandi, það hefur verið vandamál að manna þarna en það sem hefur bæst við núna er umræða um ferliverk. Það er ekki rétt sem fram kom í máli þingmannsins að það væri búið að segja upp ferliverkasamningunum. Verkefni forstjóra var að fara yfir þessa samninga og skoða hvort um gerviverktöku væri að ræða og uppsögn hefur verið frestað. Á meðan er auðvitað samtal í gangi um lausnir. Hitt sem er nýtt er að á síðasta ári var skrifað undir nýjan kjarasamning við lækna sem er að mörgu leyti mjög góður en það eru uppi deilur um innleiðingu, útfærslu vakta og annað slíkt þannig að það hefur bæst við, fleira kann að hanga þarna á spýtunni. Það er ekki langt síðan hópur fór í svokallaða löðunarferð til Svíþjóðar og Danmerkur og þar var með í för framkvæmdastjóri lækninga á Akureyri sem taldi góðan árangur af ferðinni þannig að ég bind vonir við það. Hvað ráðherra ætlar að gera í stöðunni — það er næst á dagskrá að fljúga norður á morgun að mínu frumkvæði og eiga þar fund með framkvæmdastjórn, með læknahópnum og með svokölluðu fagráði. Með mér í för verður ráðuneytisstjóri og sérfræðingur í þessum nýja kjarasamningi lækna þannig að við munum taka stöðuna með forstjóra og starfsfólki og svo ræðst auðvitað framhaldið af því.