staðan á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og hvet hana eindregið áfram og styð hana í því að finna lausnir á þessari alvarlegu stöðu sem komin er upp. En þegar kemur að ferliverkasamningnum þá er það auðvitað bara dropinn sem fyllti mælinn. Ég veit að það er búið að draga það til baka, a.m.k. fresta því fram á næsta vor, það er ekki búið að draga það algerlega til baka, a.m.k. ekki á Akureyri, svo að ég best viti. En þetta snýst í rauninni meira um, eins og hæstv. ráðherra kom inn á og ég líka í mínu máli, að vandinn er búinn að vera til langs tíma og það hefur verið þekkingarleki frá svæðinu. Það hefur verið erfitt að manna stöður og þar af leiðandi hefur starfsfólk þurft að hlaupa hraðar. Álag hefur lagst á færri hendur. Það kemur fram í lögum að Sjúkrahúsinu á Akureyri beri að veita vissa þjónustu sem varasjúkrahús þjóðarinnar og stjórnendur vilja meina að þeir séu ekki að ná því miðað við núverandi ástand. Ég vil spyrja: Hvað hyggst hæstv. ráðherra gera til að aðstoða Sjúkrahúsið á Akureyri til þess (Forseti hringir.) að það geti sinnt sínu lögbundna hlutverki?