157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

staðan á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

[15:38]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðari spurningu. Eins og ég hef nefnt hér í ræðustól áður þá er mikil innviðaskuld í heilbrigðiskerfinu í húsnæði. En það á vissulega að byggja við Sjúkrahúsið á Akureyri og ég hef séð hvað gott húsnæði skiptir gríðarlega miklu máli fyrir starfsánægju starfsmanna þannig að ég bind vonir við það. Síðan er auðvitað innviðaskuld í mönnun, í tækjabúnaði, í rafrænum kerfum og öllu því sem ég hef áður nefnt hér. Við erum auðvitað búin að fara yfir hvað varasjúkrahús á að gera og það er alveg ljóst að þar vantar upp á, en það er ekkert sem er lagað yfir nótt. Við höfum fengið skýrsludrög í hendur og erum að vinna í þeim og síðan þarf auðvitað að taka þessa uppbyggingu skref fyrir skref. En það mun ekki standa á undirritaðri að bæta úr á Sjúkrahúsinu á Akureyri.