Staða hafrannsókna.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga málefni sem staða hafrannsókna er. Það er auðvitað nauðsynlegt fyrir stjórnvöld á hverjum tíma að þau séu með augun á þessum bolta og nauðsynlegt fyrir hagsmuni samfélagsins, líkt og hv. þingmaður kemur inn á, sem eru gríðarlega miklir og það er gott að geta átt þetta samtal hér í þingsal.
Mig langar til að byrja á því að segja, eins og fram hefur komið svo sem, að það stendur nú yfir skoðun á stöðu Hafrannsóknastofnunar, m.a. í ljósi ábendinga sem komu fram í úttekt Ríkisendurskoðunar sem skilað var til Alþingis í mars síðastliðnum. Sú vinna hefur verið í gangi undanfarna mánuði innan ráðuneytisins og er megintilgangur þeirrar vinnu að fjármunir nýtist sem best og að stjórnun stofnunarinnar sé í föstum skorðum. Þess vegna er t.d. verið að skoða skipulag og umgjörð stofnunarinnar en vinna ráðuneytisins hér miðar ekki að því að endurskoða eða endurmeta faglega aðferðafræði vísindamannanna, enda mikilvægt að slík vinna sé algerlega sjálfstæð.
Tilgangur þeirrar stefnumótunarvinnu sem ég hef sett af stað er heldur ekki að draga úr mikilvægi hafrannsókna fyrir íslenskt samfélag, sannarlega ekki og þvert á móti. Markmiðið er að efla Hafrannsóknastofnun og tryggja að stofnunin geti sinnt sínu mikilvæga hlutverki þegar kemur að hafrannsóknum hér við land.
Hv. þingmaður kemur inn á marga áhugaverða þætti sem, eins og hann nefnir líka, eru ítarlegri en svo að hægt sé að koma með svör við ákveðnum spurningum eða klára umræðurnar hér en hún er hins vegar mjög mikilvæg.
Varðandi það þegar verið er að meta þróun þorskstofnsins og árangur fiskveiðistjórnar er það vissulega rétt að frá fiskveiðiárinu 2021/2022 hefur ráðgjöf fækkað úr 272.000 tonnum í 204.000 tonn. Ég tel hins vegar að það sé rétt að horfa til lengri tíma en síðustu fimm ára og þegar horft er til árangurs núverandi aflareglu frá árinu 2007/2008 þá hefur aflinn aukist verulega. Það fiskveiðiár var ráðgjöfin 130.000 tonn þannig að það hafa verið miklar breytingar. Á sama tíma hefur hrygningarstofninn farið úr 205.000 tonnum í tæp 390.000 tonn og viðmiðunarstofninn frá 673.000 tonnum árið 2008 í 970.000 tonn. Þó svo að núverandi árangur og núverandi aðferð sé sannarlega ekki yfir gagnrýni hafin þá er heldur ekki að mínu mati hægt að tala um árangursleysi í stjórn þorskveiða.
Það er líka rétt að geta þess að á hverju ári er stofnmatsvinna Hafrannsóknastofnunar fyrir þorsk og margar aðrar tegundir yfirfarin af Alþjóðahafrannsóknaráðinu, ICES, og auk þess eru aflareglur yfirfarnar að jafnaði á fimm ára fresti. Aflaregla þorsks var síðast yfirfarin 2021 vegna ráðgjafar fyrir árið 2021/2022 og það er því kominn tími til að fara yfir forsendur hennar og meta árangur. Í nefnd um endurskoðun á aflareglu þorsks voru fulltrúar frá atvinnuvegaráðuneyti, Hafrannsóknastofnun, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, fulltrúi frá stéttarfélögum sjómanna og Landssambandi smábátasjómanna. ICES hefur síðan verið falið að meta tillögur aflareglunefnda með tilliti til sjálfbærni og reksturs.
Það er kannski rétt að koma inn á það hér að ICES er alþjóðleg vísindastofnun sem Ísland er aðili að ásamt flestum ríkjum við norðanvert Atlantshaf. Stofnunin sér um eða yfirfer ráðgjöf fyrir flesta fiskstofna sem nýttir eru við austanvert Atlantshaf, þar með talið Noreg, Færeyjar, Bretland og Evrópusambandið. Þessi vísindastofnun er í fararbroddi í rannsóknum og þróun á stofnmatsaðferðum og mati á nýtingarstofninum. Þegar farið er yfir forsendur stofnmats og aflareglna eru fengnir sérfræðingar víðs vegar að úr heiminum, m.a. frá Bandaríkjunum, Kanada og Suður-Afríku. Ég nefni þetta til að renna stoðum undir það að mjög margir koma að þegar farið er yfir þessi mál.
Hvað varðar nýsköpun í rannsóknum þá kemur auðvitað alltaf til greina að nefna hana. Það eru fleiri aðilar sem stunda rannsóknir á nytjastofnum sjávar en Hafrannsóknastofnun og ég get nefnt þar áhugaverðar rannsóknir sem stýrt er af dr. Guðbjörgu Ástu Ólafsdóttur, forstöðumanni rannsóknaseturs HÍ á Vestfjörðum, á þorskungviði. Ef það koma vel rökstuddar rannsóknaráætlanir fram tel ég rétt að slíkt sé skoðað með jákvæðum augum.
Ég er runnin út á tíma þannig að þegar kemur að því að framkvæma áhættumat á því að auka heildarafla og frekari orðum um endurskoðun á aflareglu þorsks verð ég að fá að bíða með það þar til í seinni umferð.