Staða hafrannsókna.
Virðulegur forseti. Það er að mörgu leyti hægt að taka undir með hv. málshefjanda. Það er auðvitað ekkert sem er á móti því að fleiri rýni fiskveiðiráðgjöfina okkar og að það sé ástæða til að stunda jafnvel einhvers konar tilraunaverkefni á afmörkuðum svæðum. Það er líka, held ég, hægt að nýta flotann í samvinnu við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi til mun víðtækari hafrannsókna en gert er. En það sem hefur því miður, virðulegur forseti, einkennt þessa umræðu allt of mikið er vinsældapólitík. Popúlistapólitík hefur einkennt umræðuna um þessa mikilvægustu atvinnugrein okkar. Það kristallast svolítið í því sem verið er að glíma við núna. Þegar hæstv. ríkisstjórn gaf yfirlýsingu í byrjun árs um 48 daga í strandveiðum var öllum sem þekktu eitthvað til í kerfinu alveg ljóst þá þegar að þetta væri aldrei hægt að uppfylla nema brjóta lög. En í anda popúlisma var þetta lagt fram svona. Í dag erum við í algjörum vandræðum með það, allt út af þessu loforði sem verður ekki uppfyllt með góðu móti, við erum í stórkostlegum vandræðum þegar kemur að þessu 5,3% kerfi. Línuívilnun, byggðakvóti, rækju- og skelbætur, eitthvað sem ráðherrann á að gefa út reglugerð um fyrir 1. september, fyrir opnun á nýju fiskveiðiári. Þessar útgerðir eru í algerri óvissu og dæmi um það að menn séu farnir að selja frá sér.
Virðulegur forseti. Það er nefnilega nákvæmlega sama hvernig menn nálgast fiskveiðistjórnarkerfið okkar ef ekki er farið að lögum. Fáum fleiri til að rýna, förum í fleiri tilraunaverkefni hér og þar, ég er alls ekki á móti því. Förum í aukið samstarf við flotann, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi sem eru með ofboðslega fullkomin fiskiskip, orðin eins og bestu hafrannsóknarskip í mörgum tilfellum. Notum þetta miklu meira, (Forseti hringir.) en grundvallarreglan verður alltaf sú, virðulegur forseti, að við förum að lögum og reglum og það hefur þessi ríkisstjórn ekki verið að gera þannig (Forseti hringir.) að fyrirsjáanleikinn er enginn og það er að skapa mikið vandamál.