Staða hafrannsókna.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til þessarar umræðu. Það er margt í því sem upphafsmaður þessarar umræðu, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, sagði hér sem er hægt að taka undir en það sem ég óttast í þessu öllu er að við séum komin í einhverja vegferð sem snýr að mörgu leyti að því að berja lappirnar undan aflamarkskerfinu sem hefur reynst okkur svo vel hvað varðar árangur í sjávarútvegi og fiskveiðistjórnun heilt yfir. Við upphaf þingfundar var dreift nefndaráliti meiri hluta hv. atvinnuveganefndar þar sem lagt er til að tegund verði tekin úr kvóta, tekin út úr aflamarkskerfinu. Í því nefndaráliti er sérstaklega tilgreint að ráðherra skuli hlutast til um heildarveiðiráðgjöf gagnvart ákveðnum grunni, sem sagt að það verði sett gólf í hana. Undir þetta nefndarálit rita nefndarmenn þingflokks Samfylkingar og Viðreisnar í atvinnuveganefnd. Þess vegna vil ég hér benda á þessa þróun sem mér þykir hafa verið viðvarandi núna um nokkra hríð. Við sáum þetta í frumvarpi sem ekki varð að lögum í fyrra varðandi strandveiðar þar sem voru uppi áform um að kippa úr sambandi hlutverki Fiskistofu hvað það varðar að stöðva fiskveiðar að kvóta kláruðum. Ég vil segja við okkur hér inni: Aflamarkskerfið er grundvöllur gríðarlegrar verðmætasköpunar og hags í sjávarútvegi og hagsældar landsins alls. Ég bara hvet okkur til að fara varlega þegar kemur að því að reka hornin í það. Ég fagna orðum hæstv. ráðherra þegar ráðherra sagði hér áðan að hún sjái fyrir sér markmið um að efla Hafró. Ég held að það skipti máli vegna þess að auknar rannsóknir geta leitt til hækkaðrar ráðgjafar sem mun skila okkur öllum meiri hagsæld en annars hefði orðið (Forseti hringir.) þannig að ég vona að við förum í þá vegferð með það fyrir augum að auka (Forseti hringir.) og bæta enn afkomu af sjávarútvegi. (Forseti hringir.) En ég geld varhuga við því að við rekum hornin í aflamarkskerfið eins og það liggur fyrir.
(Forseti (): Ég minni hv. þingmenn á að ræðutíminn er tvær mínútur.)