157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

Staða hafrannsókna.

[16:00]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni kærlega fyrir frumkvæðið að þessari umræðu og sömuleiðis hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir sína ræðu og þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni. Ég tek heils hugar undir með hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni þegar hann talar um að hér sé í rauninni um að ræða eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar, þ.e. fiskveiðiauðlindina og hvernig við umgöngumst hana og hámörkum þau verðmæti sem við getum búið til úr þeirri auðlind. Við Íslendingar getum verið heldur betur stolt af því fiskveiðistjórnarkerfi sem við höfum byggt upp þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi og sömuleiðis það markmið að hámarka verðmætasköpun, ekki bara á hverju ári fyrir sig heldur yfir lengra tímabil og til framtíðar. Þær ákvarðanir sem við tökum til að ná þessum markmiðum eru byggðar á vísindalegri ráðgjöf sem að mínu mati hefur tekist nokkuð vel til með.

Ég er ekki alveg sammála hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni þegar hann talar um í spurningum sínum að um sé að ræða árangursleysi. Auðvitað eru það vonbrigði að heildarþorskafli hafi farið úr 275.000 tonnum niður í 103.000 tonn. Eins og hæstv. atvinnuvegaráðherra kom inn á í sinni ræðu þá var hann hins vegar ekki nema 130.000 tonn á fiskveiðiárinu 2007/2008. Þetta er ekki bara þróun sem hefur átt sér stað í íslensku lögsögunni, ef við skoðum Barentshafið var líka þessi þróun þar. Aflinn fór niður í upphafi aldar og náði ákveðnu lágmarki 2008 og fór síðan upp og aftur niður.

Þetta er allt of stuttur tími, frú forseti, miðað við hvað þetta er mikilvæg og skemmtileg umræða. Mér fannst hv. þingmaður hitta naglann á höfuðið þegar hann talaði um að sú vísindalega ráðgjöf sem við byggjum á megi ekki vera yfir málefnalega gagnrýni hafin. Þetta eru mjög margar áhugaverðar spurningar sem hv. þingmaður veltir upp, til að mynda með opin svæði í kringum Grímsey og áhættumat varðandi það að auka afla. (Forseti hringir.) Mér finnst rauði þráðurinn hér í umræðunni hafa verið sá að við eigum að efla hafrannsóknir (Forseti hringir.) og Hafrannsóknastofnun. Ég legg til að við tökum öll höndum saman og aukum fjárveitingar til Hafrannsóknastofnunar, ekki eingöngu (Forseti hringir.) til að ráðast í handahófskenndar tilraunir heldur raunverulega til að efla vísindin, (Forseti hringir.) til að aðstoða okkur við að leggja mat á það hverju sinni hvað við getum gert til að hámarka verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi. — Takk fyrir mig og lifi íslenskur sjávarútvegur.

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar að ræðutími er tvær mínútur, ekki tvær og hálf.)