157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

Staða hafrannsókna.

[16:13]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og hv. þingmönnum fyrir almennt jákvæða þátttöku og ummæli um þessa umræðu. Ég held að það veiti ekkert af að taka þessa umræðu svolítið dýpra og oftar á hinu háa Alþingi. En ég vil benda hæstv. ráðherra á að það er einmitt rétt að taka einnig þennan faglega þátt til skoðunar. Það liggur fyrir skýrsla, liðlega tvítug skýrsla, fagleg skýrsla með gagnrýni bæði hvað varðar stofnmat og veiðiráðgjöf. Það var Tumi Tómasson sem tók hana saman fyrir rúmum 20 árum síðan. Ég held að það væri ráð að taka hana til skoðunar og fara gaumgæfilega yfir hana því að ef þessi gagnrýni reynist rétt þá er það gríðarlegur ávinningur fyrir þjóðina og menn verða að þora að kíkja í þá skýrslu.

Ég vil benda á, herra forseti, að þessi umræddu 130.000 tonn sem vitnað var hér til eru afleiðing aflareglunnar sem við erum að nota núna. Það var ráðgjöfin út frá reglunni. Ef við skoðum forspárgildi þessarar aflaráðgjafar þá átti hún að skila að fjórum árum liðnum 350.000 tonnum, ekki bara þá heldur að jafnaði alla tíð um alla framtíð. En núna erum við að horfa á allt aðra ráðgjöf. Hvernig sem á það er litið, með allri sanngirni, þá er það bara þannig að þessi ráðgjöf og aflaregla er ekki að skila tilætluðum árangri. Ég skora á hæstv. ráðherra að taka umrædda skýrslu til gagngerrar skoðunar og skoða hlutina upp á nýtt. Það er bara einfaldlega þannig að vísindin eru vettvangur gagnrýninnar hugsunar en ekki að menn fylgi einhverjum reglum út í eitt án þess að taka grundvöll þeirra til skoðunar.