kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Herra forseti. Í þessu frumvarpi birtist enn eitt dæmið um það sem hefur verið þróunin hér á landi á undanförnum árum, það er stöðugt verið að finna nýjar leiðir til að leggja gjöld á fólk og nú á það að ná út fyrir dauðann og taka sérstakt gjald af því að geyma látið fólk. Það er nóg við að fást þegar menn missa nákomna þó að ekki sé bætt við því áhyggjuefni að þurfa að greiða sérstakt leigugjald fyrir hinn látna. Ég geri mér grein fyrir því að öllu fylgir kostnaður en við greiðum þrátt fyrir allt skatta í þessu samfélagi. Þróunin hefur hins vegar verið sú að skattarnir eru hækkaðir en um leið finna menn upp ný gjöld fyrir allt mögulegt. Þess vegna sé ég mér ekki fært að styðja þetta frumvarp.