kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Skattar á hina dauðu, var hvíslað hér þegar ég labbaði fram hjá. Mig langaði bara til að ramma inn hvað það er sem hér er lagt til að verði sendur sem viðbótarreikningur svona í lokarispu þeirra sem í þessa vegferð fara. Með leyfi forseta, þá segir hérna:
„Við ákvörðun gjalds skal“ — ekki heimilt heldur skal — „í gjaldskrá leggja til grundvallar kostnað vegna reksturs líkhússins, m.a.“ — ekki tæmandi — „kostnað vegna launatengdra gjalda, húsnæðis, rafmagns, viðhalds, ræstinga, tækja, áhalda, öryggiskerfis og trygginga.“
Ég veit að hinir látnu vildu nú alveg örugglega hafa tryggt rafmagn á þessum stað en mér þykir býsna vítt kastað netinu hvað þær heimildir varðar sem hér eru rammaðar inn og sérstaklega í ljósi þess að þetta er rammað inn hér sem tiltölulega fortakslaus nálgun á því hvaða kostnaður skal vera þarna undirliggjandi. (Forseti hringir.) Ég mun sitja hjá við afgreiðslu þessa máls hér við 2. umræðu og vona að ef það gengur til nefndar á milli 2. og 3. umræðu þá verði þetta alla vega rammað inn betur og kannski ekki sett þessi fortakslausa skylda á svona mikla gjaldtöku sem mörgum þykir nú vera komið nóg af á fyrri stigum þess sem þarna er undir.