kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég er hingað upp komin til að þakka allsherjarnefnd fyrir góða vinnu við þetta mál. Mér finnst, í ljósi fremur hefðbundinna viðbragða ákveðins flokks hérna inni, ástæða til að nefna það að þessi breyting er til komin vegna alvarlegrar rekstrarstöðu líkhúsanna í landinu. Kirkjugarðaráð hefur óskað eftir því að við þessari stöðu verði brugðist með þeim hætti. Ég held að þurfi ekki að hugsa lengi hvað það gerir okkur sem samfélagi ef þessi starfsemi stendur ekki undir sér og getur ekki haldið áfram.
En svo vildi ég líka nefna hina breytinguna, sem ég tel að sé ekki síður mikilvæg, en það er heimild til að vera með grafarstæði lengur en hefðbundin tímamörk gera ráð fyrir, sem er ekki síst hugsað með tilliti til þeirra foreldra sem missa frá sér ung börn.