157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

113. mál
[16:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað þannig að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson lýsti hér yfir fjárþurrð þeirra sem reka þá starfsemi sem hér er undir. Sú staða er auðvitað til komin vegna ákvarðana á fyrri stigum er varða fjárveitingar, eins og við þekkjum. Það berast hér reglulegir neyðarpóstar, neyðaróp þeirra sem reka kirkjugarða landsins. Ég held að þetta sé partur af stærri mynd sem við þurfum að skoða. En lausnin virðist alltaf vera sú hjá núverandi ríkisstjórn að bæta við viðbótargjaldi í staðinn fyrir að reyna að átta sig á hver rót vandans er, sem er allt önnur en sú að kalla fram enn eitt viðbótargjaldið eins og hér er lagt til. Síðan væri kannski gustuk, þótt seint sé, af því þetta eru ekki margar greinar í þessu máli, að splitta upp atkvæðagreiðslu um 1. gr. og 2. gr. fyrir þá þingmenn sem vilja taka sitthvora afstöðu til þeirra mála.