kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegi forseti. Ég kem hér aftur upp undir þessari umræðu. Ég ætla ekki að fara í einhvers konar útskýringu á muninum á skatti og gjöldum. Ef það væri svo að Miðflokkurinn hefði lagt fram einhverjar tillögur sem myndu bæta tekjustreymi ríkissjóðs til að geta t.d. mætt þessum vanda þá væri hugsanlega um ábyrga tillögu að ræða, að falla frá gjaldheimtu og sækja þetta í gegnum skatta, líkt og þau hafa nefnt hér. En það eina sem hefur borist í fjárlagagerðinni hingað til hafa verið skattalækkanir, sem gera þá ríkinu einmitt erfiðara fyrir að byggja upp þessa þjónustu. (Gripið fram í.) En aftur vil ég ítreka: Ábyrg stjórnvöld tryggja fjármuni til að veita þá þjónustu sem íbúar landsins eiga rétt á.