kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég vil geta þess, vegna þeirrar umræðu sem nú fer fram í þingsal, að við gerð þessa frumvarps var haft samráð við Kirkjugarða Reykjavíkur, Kirkjugarða Akureyrar og kirkjugarðaráð og það liggja líka fyrir umsagnir frá Sorgarmiðstöð; allar úr sömu áttinni og allar með sömu niðurstöðuna. Hitt er síðan ekkert launungarmál að það er mjög erfið staða í þessum málaflokki og þessi málaflokkur hefur til margra ára verið vanræktur af þáverandi stjórnvöldum. Við getum sem samfélag ekki verið í þeirri stöðu að það sé óvissa um það hvort kirkjugarðarnir okkar eða líkhúsin geti verið starfandi. Það hljótum við að sjá. Ég er mjög ánægð með þetta mál, mjög ánægð með að vera að vinna þetta í góðri samvinnu við Kirkjugarða Reykjavíkur, Kirkjugarða Akureyrar og kirkjugarðaráð og jafnframt gríðarlega stolt af því að við séum hér með lagabreytingu að ná utan um hagsmuni þeirra foreldra sem missa frá sér börn og geta þá verið með grafarstæði lengur.