157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

113. mál
[16:35]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta mál og umræða um það reynist lýsandi fyrir hugarfar þessarar ríkisstjórnar og kannski fleiri ríkisstjórna þess efnis að þær sjá einfaldlega ekkert annað en hækkanir gjalda alls staðar. Hér kom hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar upp og sagði að það væri ómögulegt að gagnrýna gjaldahækkanir ef menn hefðu ekki lagt fram tillögur um skattahækkanir. Það er ekkert annað sem kemst að hjá þessari hæstv. ríkisstjórn en skattahækkanir og ef þær eru ekki fyrir hendi þá gjaldahækkanir. Þetta gengur ekki, herra forseti. Þetta er ekki rökrétt. Það mætti allt eins halda því fram að ef ríkisstjórnin ætlar að leggja aukin gjöld á sjúklinga sé ekki hægt að andmæla því ef menn hafa ekki lagt til skattahækkanir. Þetta er algerlega órökrétt en lýsandi fyrir hugarfar þessarar ríkisstjórnar.