framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frumvarp sem er með ákveðna stefnubreytingu og skiptir miklu máli. Í því er lagt til að námsárangur verði ekki endilega frumforsenda innritunar í framhaldsskóla og það felur í sér afnám gegnsæis, skerðingu á jafnræði og gengisfellingu á því sem við eigum að leggja mest upp úr, sem er þekking og færni, sem hefur einmitt átt undir högg að sækja síðastliðin 20 ár í íslensku menntakerfi. Sérkenni og sérstaða framhaldsskólanna er í hættu og veruleg hætta er á að skólarnir verði einsleitir og sérhæfing mannauðs verði minni. Að auki kemur fram í frumvarpinu að réttur nemenda og foreldra sé skertur. Frumvarpið veitir falskt öryggi, það er ákveðið skrifræðislegt net sem færir ábyrgðina frá þeim fullorðnu í framhaldsskólunum yfir á nemendur sem flestir eru börn. Umboðsmaður barna varar sérstaklega við þessu. Þetta er eins konar sjálfvirkni sem útvistar ábyrgð fullorðinna fagmanna til barna og foreldra þeirra. Þannig getur fjöldi barna sem greinin nær til margfaldast án þess raunverulega að réttindi þeirra styrkist. Á þetta hefur umboðsmaður barna ítrekað bent.