157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:41]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp ber þess merki að ýmsum breytingum sé steypt saman í eitt frumvarp. Margar eru þær skynsamlegar og í eðlilega átt. Hins vegar eru þarna þættir sem ég sjálfur hef ekki getað fellt mig við né aðrir í allsherjar- og menntamálanefnd, svo sem þættir sem lúta að innritun nemenda þar sem farið er í þá átt að gera þetta, að mínu mati, ósanngjarnara og matskenndara og þetta mun bitna á jafnræði nemenda. Þar má svo sem fara út í smáatriði en það gefst ekki rúm til þess hér en það er ástæða þess að ég leggst gegn málinu ef þessar breytingar verða ekki teknar út. Þær lúta líka að strangari reglum um stjórn framhaldsskólastjórna á nemendum og starfi þeirra og nemendafélögum sem ég tel m.a. geta komið niður á málfrelsi ungs fólks. Ég tel þetta ekki nægilega vel hugsað. Að þessu óbreyttu leggst ég gegn þessu frumvarpi.