framhaldsskólar.
Herra forseti. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson skautaði fram hjá ákveðnum mikilvægum hlutum. Þetta er allt hægt nú þegar, þ.e. að taka tillit til hinna ýmsu þátta í núgildandi lögum. Það sem er nýtt í þessu er að hér er sérstaklega tekið fram að námsárangur skuli gengisfelldur. Það er verið að setja nemendur í óvissu. Það er verið að ýta út nemendum sem eru að keppast að því í grunnskóla að ná góðum árangri í sínu námi. Þangað ætti fókusinn að fara en ekki eitthvert út og suður og á alls konar aðra þætti sem mögulega kosta pening, þætti sem foreldrar geta keypt fyrir börnin sín þannig að þau styrki sína hæfni á einhverju sviði sem fellur ekki undir námsárangur. Grunnskólinn er jöfnunartæki. Þar eiga allir að vera jafnir og þar er það námsárangurinn sem gildir en ekki einhver aðkeypt þjónusta foreldra, en það virðist vera einhvern veginn hin nýja pólitíska sýn þessarar ríkisstjórnar.