framhaldsskólar.
Virðulegur forseti. Ég vildi vekja athygli á því að félagi minn úr hv. allsherjarnefnd, hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, talar um íþróttabrautir og annað eins. Í greinargerð frumvarpsins er nokkuð ljóst að þetta er mun frekar — ja, ekki endilega mun frekar en a.m.k. hluti af hugsuninni að allir framhaldsskólar axli ábyrgð á fjölbreyttum nemendahópi, eins og það er orðað í greinargerð. Það er alveg augljóst að þessar breytingar eru, eins og aðrar breytingar stjórnarinnar, gerðar í því augnamiði að auka einsleitni á milli íslenskra framhaldsskóla, að draga úr fjölbreytni framhaldsskólanna þótt sagt sé að auka eigi fjölbreytni innan skólanna. Gera á íslenska framhaldsskóla einsleitari innbyrðis. Það er markmiðið hér, það er markmiðið með öðrum frumvörpum ríkisstjórnarinnar og á þeim grunni leggjumst við gegn þessu. Þannig að menn geta ekki dregið upp einhverjar íþróttir og annað eins, um það snýst málið ekki, heldur að jafna út framhaldsskólana. Þetta er lítið skref í þá átt.