157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

framhaldsskólar.

154. mál
[16:46]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil bara fagna þessu máli og að það sé komið þó þetta langt. Við erum búin að ræða þetta afskaplega ítarlega og vel, bæði á þessu þingi og því síðasta. Ég tel að í þessu frumvarpi, og með því að samþykkja það, sé ekkert barn að tapa. Það er enginn að missa spón úr aski sínum. Hér er einungis um að ræða heimild til að horfa til fleiri þátta í fari barns eða færni. Auðvitað verður námsárangur alltaf einn stærsti þátturinn, stór þáttur ef ekki stærsti þátturinn. En færni birtist í mörgum öðrum myndum og það er alveg sjálfsagt að skoða alla þætti þegar kemur að því að innrita barn í skóla. Hér er bara um að ræða þann þátt að auka fjölbreytni. Ég held að lífið í skólanum, skemmtanalífið og stemningin, verði miklu betri þegar hópurinn er ekki einsleitur heldur fjölbreyttur. En síðan er það auðvitað skólans að finna út úr þessu, hver skóli fyrir sig.