Störf þingsins.
Frú forseti. Það er nú fréttaefni hér á landi að á annan tug barna sem hingað komu til lands á grundvelli fjölskyldusameiningar hafa engin blóðtengsl við þá einstaklinga sem þau áttu að sameinast við þessar svokölluðu fjölskyldusameiningar sem átt hafa sér stað á allra síðustu árum. Fram hefur komið að stjórnvöld hér á landi hafa ekki tiltækan tækjabúnað til að greina lífsýni áður en börnin koma hingað. Þegar svo háttar til verða mál þessara barna að barnaverndarmáli hér á landi. Barnið fer í forsjá íslenskra stjórnvalda. Enn fremur hefur komið fram að engar rannsóknir hafi verið gerðar á afdrifum þeirra barna sem náð hafa sjálfræðisaldri og þannig horfið úr forsjá íslenskra stjórnvalda.
Frú forseti. Engin heildstæð stefna hefur verið mörkuð um vinnulag við þessi mál af hálfu mennta- og barnamálaráðuneytisins, til að mynda hvort senda eigi þessi börn til yfirvalda í sínu heimalandi. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra verður að svara því hver stefna hans ráðuneytis er í þessum efnum meðan hann er í þessu ráðuneyti. Svo er að skilja að nágrannalönd okkar hafi sum hver krafist DNA-prófs áður en tekið er við ósjálfráða einstaklingum til að sanna blóðbönd en það virðist ekki vera gert hér á landi. Hæstv. dómsmálaráðherra þarf að upplýsa hvað sé að gerast í hennar ráðuneyti, ef eitthvað, hvað varðar fjölskyldusameiningar og hvort taka eigi upp stefnu sem mikið hefur verið rædd á meðal nágrannaríkja um að fjölskyldusameiningar geti ekki átt sér stað af neinu tagi nema að undangengnu DNA-prófi sem staðfesti blóðtengsl.
Frú forseti. Stefna stjórnvalda í þessum málum þarf að vera alveg skýr og liggja fyrir.