Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings, sendi hæstv. forsætisráðherra opið bréf sem birtist á Vísi í gær. Í bréfi sínu til forsætisráðherra veltir Jónína fyrir sér ummælum innviðaráðherra sem snúa að jarðgangaframkvæmdum næstu ára. Þetta er eðlileg spurning og vangaveltur hjá forseta sveitarstjórnar Múlaþings, að velta því fyrir sér þegar rætt er um önnur göng en Fjarðarheiðargöng, og eðlilega er forseti sveitarstjórnar Múlaþings að berjast fyrir Fjarðarheiðargöngum þar sem þetta eru einu göngin sem eru tilbúin til útboðs. Vissulega eru Fjarðarheiðargöng dýr framkvæmd en það að vera að velta upp öðrum gangamöguleikum sem ekki hafa verið rannsakaðir eða eru tilbúnir til útboðs er að mínu viti frekar óábyrgt hjal. Fjarðarheiðargöng eru þau einu sem eru tilbúin til útboðs. Ég stend hér með Seyðfirðingum hvað það varðar og Fjarðarheiðargöng eru þau göng sem við eigum að horfa til næst. Ég hvet alla til þess að lesa hið opna bréf sem Jónína Brynjólfsdóttir skrifaði forsætisráðherra og birtist á Vísi í gær um það hvernig staðan væri á þessum málum.
Virðulegi forseti. Ég stend hér með Seyðfirðingum og sömuleiðis hvað Fjarðarheiðargöng varðar. Byrjum nú á því, þingheimur, og stöndum saman að því að fara að hefja hér almennilega jarðgangavinnu og þá förum við í það að byrja á þeim göngum sem eru tilbúin til útboðs.