157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf):

Virðulegi forseti. Í dag ætla ég raunverulega að ræða um störf þingsins undir þessum dagskrárlið. Þannig háttar til um þessar mundir að í meðförum þingsins eða eru væntanleg mörg þingmál sem tengjast þjóðaröryggi, almannavörnum og öryggis- og varnarmálum. Utanríkismálanefnd hefur til meðferðar þingmál um stefnumótun í varnarmálum, þar á meðal þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um stefnu í varnar- og öryggismálum sem byggð er á vinnu þingmannahóps frá því fyrr á árinu. Í dag er á dagskrá þingsins frumvarp dómsmálaráðherra sem felur í sér heildarskoðun almannavarna og atvinnuvegaráðherra leggur fljótlega fram frumvarp um rýni erlendra fjárfestinga í tengslum við þjóðaröryggi. Einnig er nú unnið að mati á áfallaþoli samfélagsins, byggt á leiðbeiningum NATO um sjö grunnviðmið. Þetta mat er unnið í breiðu samráði við alla stjórnsýsluna undir stjórn utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og ríkislögreglustjóra. Því gefst hér á Alþingi sjaldgæft tækifæri til að ræða þjóðaröryggi, almannavarna- og öryggismál og varnarmálin á breiðum grunni. Það er mikilvægt að við nýtum þetta tækifæri vel og í öllum nefndum þar sem þessi mál koma til skoðunar verði horft á þessa tengingu og nefndirnar ræði jafnvel saman um einstaka þætti. Skoðum allt sem tengist þessum málaflokki núna um þessar mundir. Heildstæð sýn á þjóðaröryggi, almannavarnamál, öryggis- og varnarmál með skýrri stefnu og góðu lagaumhverfi hefur sjaldan verið jafn mikilvæg og núna.

Frú forseti. Horfa þarf til allra þátta, bæði þeirra er snúa að lagaumgjörðinni og stjórnsýslunni og rýna hvar og hvernig málefni tengjast og hvort þörf sé á endurskipulagningu og tilfærslu verkefna til að sem mestur slagkraftur náist þvert á stofnanir, samtök, skóla og ráðuneyti.